ADHD greining: Skýr svör. Næstu skref.
Fagleg ADHD greining hjá teymi hjúkrunarfræðings, sálfræðings og geðlæknis. Þú skráir þig í ferlið á vefnum, án tilvísunar, við höfum samband við þig og lóðsum þig í gegnum ferlið. Ef ferlið leiðir til ADHD greiningar bjóðum við upp á meðferð í beinu framhaldi.
Þú greiðir aðeins fyrir skimunina í byrjun, 40.000 kr. Ef skimunin gefur tilefni til býðst þér svo að halda áfram í fulla greiningu, sem kostar 300.000 kr. Boðið er upp á að dreifa greiðslum fyrir greiningu með raðgreiðslum, Netgíró eða Pei.
Svona gengur þetta fyrir sig
- Skimun. Þú svarar spurningalistum á Mínum síðum. Heilbrigðisstarfsmaður fer yfir gögnin þín (forskimun). Ef þau benda til ADHD tekur við skimunarviðtal hjá hjúkrunarfræðingi. Ef ekki lýkur ferlinu þar og þú færð helming skimunargjaldsins endurgreiddan.
- Greining. Ef skimunin bendir til ADHD býðst þér full greining í teymisvinnu hjúkrunarfræðings, sálfræðings og geðlæknis. Þú færð ítarlega skýrslu þar sem niðurstaðan er rökstudd.
- Meðferð. Ef niðurstaðan verður ADHD býðst þér meðferð í beinu framhaldi: sálfræðimeðferð, lyfjameðferð eða hvort tveggja, eftir því sem við á.
Smelltu hér til þess að sækja mynd (flæðirit) sem sýnir ítarlegar hvernig ferlið virkar.
Gott að vita
- Ekki þarf tilvísun frá heimilislækni.
- Fyrir þá sem verða 17 ára á árinu eða eru eldri.
- Stuttir biðtímar
- Hjá um þriðjungi lýkur ferlinu við forskimun og um helmingi þeirra sem fara í skimunarviðtal er boðið að halda áfram í fulla greiningu.
- Hægt er að greiða fyrir greininguna með korti, raðgreiðslum, Netgíró eða Pei.
Tilbúin til þess að hefja ferlið?
Spurningar og svör
- Hvað er skimun?
Skimun er ferli sem miðar að því að gefa fljót svör um það hvort rétt sé að gera fulla ADHD greiningu án þess að stofna til mikils kostnaðar. Skimunin skiptist í tvennt. Forskimun, þar sem heilbrigðisstarfsmenn fara í gegnum gögn skjólstæðings, og skimunarviðtal hjá hjúkrunarfræðingi. Um þriðjungur mála endar í forskimun og fá skjólstæðingar þá hröð og ódýr svör. Í þeim tilfellum sem ferlið endar ekki í forskimun er skimunarviðtal hjá hjúkrunarfræðingi næsta skref. Í því viðtali kemur svo í ljós hvort rétt sé að fara í fulla ADHD greiningu. Um helmingi þeirra sem fara í skimunarviðtal býðst full ADHD greining. - Hvað er full ADHD greining?
Full ADHD greining samanstendur af skimun, sjá spurninguna hér fyrir ofan, og viðtölum og frekari upplýsingaöflun heilbrigðisstarfsfólks, en teymið samanstendur af hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og geðlæknum. Frekari upplýsingar má fá með því að skoða flæðiritið okkar yfir greiningarferlið. - Hvað er kannað í ADHD greiningu?
Kannað er hvort til staðar séu mikil ADHD einkenni, hvort þau séu meðfædd, hvort þau valdi hömlun í mismunandi hlutum lífs skjólstæðingsins og hvort eitthvað annað geti skýrt þau betur. - Hvað tekur við eftir ADHD greiningarferli?
Ef niðurstaða greiningarferlisins er að skjólstæðingurinn hafi ADHD er boðið upp á meðferð við því, bæði sálfræði- og lyfjameðferð, eftir því hvað passar. - Hvað er ADHD uppvinnsla ekki?
ADHD uppvinnslu er ekki ætlað að vinna upp eða gera nákvæmar greiningar á öðrum vandamálum, nema að því leyti sem nauðsynlegt er til mismunagreiningar og meðhöndlunar á mögulegu ADHD. Ef niðurstaða ferlisins er ekki ADHD er almennt ekki boðið upp á aðra greiningar- eða meðferðarvinnu. Ef skjólstæðingur telur annan vanda sinn eiga heima hjá Per mentis getur hann rætt við sinn heimilislækni um vandann og heimilislæknirinn getur metið hvort rétt sé að vísa þeim vanda til Per mentis.