ADHD
Þrjár mismunandi ADHD þjónustur

ADHD

Við bjóðum upp á fullt úrval þjónustu þegar kemur að ADHD hjá fullorðnum*. Við gerum fullar greiningar, endurmetum gamlar greiningar og veitum meðferð, bæði sálfræði- og lyfjameðferðir. 

* Fullorðnir teljast þeir sem verða 17 ára á árinu og eldri.

Fyrir þá sem ekki hafa fyrri ADHD greiningu er best að byrja í greiningarkaflanum hér fyrir neðan. Athugið að ekki er þörf á tilvísun til þess að koma til okkar í ADHD uppvinnslu/greiningu.

Meiri upplýsingar um ADHD greiningu
Skráning í ADHD greiningu (Mínar síður)

Fyrir þá sem hafa fengið ADHD greiningu áður, en þurfa endurmat, t.d. fyrir lyfjameðferð, þarf tilvísun frá heimilislækni.

Við bjóðum svo upp á bæði sálfræði- og lyfjameðferð fyrir þá sem hafa greiningu.

Vinsamlegast athugið að þegar við tölum um ADHD greiningu eigum við við fulla greiningu frá lækni með viðeigandi sérhæfingu. Sálfræðimat nægir ekki.

ADHD greining

Ítarleg uppvinnsla/greining m.t.t. ADHD

  • Ekki er þörf á tilvísun
  • Skráning fer fram á netinu
  • Fylla verður í skimunarlista til þess að skráning verði virk
  • Ferlið byrjar á því að heilbrigðisstarfsmaður fer yfir fyrirliggjandi gögn og sker úr um hvort rétt sé að halda áfram í skimunarviðtal
  • Ef skimunarviðtal bendir til ADHD fer af stað full uppvinnsla/greining
ADHD meðferð

Sálfræði- og lyfjameðferð við ADHD

Meðferð við ADHD er í boði fyrir skjólstæðinga stofunnar, sem eru ýmist þeir sem fengið hafa ADHD greiningu frá okkur eða sem hefur verið vísað til okkar af lækni.